Krúser fagnar með Kvartmíluklúbbnum – Taktu þátt í 50 ára afmælisveislu!

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Krúser tekur að sjálfsögðu virkan þátt í stórglæsilegri 50 ára afmælissýningu Kvartmíluklúbbsins! Þetta verður sannkölluð bílaveisla sem enginn áhugamaður má láta fram hjá sér fara. Á staðnum verða um 250 tryllitæki, keppnistæki, mótorhjól og ekki síst  einstakt úrval af glæsilegum bílum – nýjum og gömlum – glæsivögnum sem fanga augað og kveikja áhugann. Við lofum frábærri stemningu og einstakri sýn á þá fjölbreyttu og glæsilegu flóru farartækja sem félagar Read more

Krúser klúbburinn – Bílaáhugafólk á ferð og flugi

Það er eitthvað sérstakt við það að fara í hópakstri á rúntinn, á flottum bílum, í góðu veðri og með frábæru fólki. Það er einmitt þetta sem Krúser klúbburinn snýst um. Við sameinum fólk sem elskar bíla – hvort sem það eru klassískir amerískir krúserar, kvartmílukaggar og sportbílar eða nýjustu gerðirnar með alla nútímatækni. Krúser klúbburinn er opinn öllum sem hafa áhuga á akstri, bílamenningu og því að hittast reglulega og njóta stundarinnar. Við höfum Read more

Gakktu í Krúser!

Við bjóðum nýja félaga velkomna í klúbbinn! Ýmsir afslættir fylgja félagsaðild. Félagar fá 50% afslátt á skoðunargjaldi hjá Aðalskoðun og 20% af næsta bíl ef félagar eiga fleiri en einn. Að auki fá félagar mjög hagstætt sérverð á skoðunargjaldi fyrir fornbíla (25 ára og eldri) hjá Aðalskoðun, sé mætt með þá í skoðun á sérstaklega auglýstu tímabili. Það er einfalt að ganga í Krúser: * Fyllið út: Umsókn um að gerast félagi í Krúser SKRÁNING Read more

Heimsókn til Henry

Því miður urðum við fyrir því óláni að nýjasta videoið okkar hvarf af síðunni. Við erum að skoða málið með Facebook en í millitíðinni setjum við það bara inn aftur  Heimsókn til Henry Stefansson í Sarasota, Flórída, en þar er um að ræða einstakt safn hans sem gaman er að heimsækja. Gefum Henry orðið. Fleiri video koma inn næstu daga….. Stay tuned 

American Cars & Coffee

Grímur Víkingur Þórarinsson Krúser félagi sendi okkur kveðju frá Tenerife þar sem hann er búsettur: Sæl verið þið, þetta er video af fyrsta rúntinum hérna í 3 ár, covidið lokaði öllum svona viðburðum, endað var í rosaflottum 3 rétta kvöldverði á hóteli norðan megin á eyjunni og ekið ca 300 kílómetra yfir daginn, mjög skemmtilegt, bestu sólarkveðjur til ykkar héðan frá paradís