Krúser fagnar með Kvartmíluklúbbnum – Taktu þátt í 50 ára afmælisveislu!

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Krúser tekur að sjálfsögðu virkan þátt í stórglæsilegri 50 ára afmælissýningu Kvartmíluklúbbsins! Þetta verður sannkölluð bílaveisla sem enginn áhugamaður má láta fram hjá sér fara. Á staðnum verða um 250 tryllitæki, keppnistæki, mótorhjól og ekki síst  einstakt úrval af glæsilegum bílum – nýjum og gömlum – glæsivögnum sem fanga augað og kveikja áhugann. Við lofum frábærri stemningu og einstakri sýn á þá fjölbreyttu og glæsilegu flóru farartækja sem félagar Read more…

American Cars & Coffee

Grímur Víkingur Þórarinsson Krúser félagi sendi okkur kveðju frá Tenerife þar sem hann er búsettur: Sæl verið þið, þetta er video af fyrsta rúntinum hérna í 3 ár, covidið lokaði öllum svona viðburðum, endað var í rosaflottum 3 rétta kvöldverði á hóteli norðan megin á eyjunni og ekið ca 300 kílómetra yfir daginn, mjög skemmtilegt, bestu sólarkveðjur til ykkar héðan frá paradís

Heimsókn til Henry

Því miður urðum við fyrir því óláni að nýjasta videoið okkar hvarf af síðunni. Við erum að skoða málið með Facebook en í millitíðinni setjum við það bara inn aftur  Heimsókn til Henry Stefansson í Sarasota, Flórída, en þar er um að ræða einstakt safn hans sem gaman er að heimsækja. Gefum Henry orðið. Fleiri video koma inn næstu daga….. Stay tuned 

Gakktu í Krúser!

Við bjóðum nýja félaga velkomna í klúbbinn! Ýmsir afslættir fylgja félagsaðild. Félagar fá 50% afslátt á skoðunargjaldi hjá Aðalskoðun og 20% af næsta bíl ef félagar eiga fleiri en einn. Að auki fá félagar mjög hagstætt sérverð á skoðunargjaldi fyrir fornbíla (25 ára og eldri) hjá Aðalskoðun, sé mætt með þá í skoðun á sérstaklega auglýstu tímabili. Það er einfalt að ganga í Krúser: * Fyllið út: Umsókn um að gerast félagi í Krúser https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfJKdMO03PRyVjiJoVWva0vQDdkcwDXEycO240xVDGbd_LaUg/viewform?key=p_B_3hS4nDDK3tRAhZMxcIw Read more…

Krúser klúbburinn – Bílaáhugafólk á ferð og flugi

Það er eitthvað sérstakt við það að fara í hópakstri á rúntinn, á flottum bílum, í góðu veðri og með frábæru fólki. Það er einmitt þetta sem Krúser klúbburinn snýst um. Við sameinum fólk sem elskar bíla – hvort sem það eru klassískir amerískir krúserar, kvartmílukaggar og sportbílar eða nýjustu gerðirnar með alla nútímatækni. Krúser klúbburinn er opinn öllum sem hafa áhuga á akstri, bílamenningu og því að hittast reglulega og njóta stundarinnar. Við höfum Read more…