Það er eitthvað sérstakt við það að fara í hópakstri á rúntinn, á flottum bílum, í góðu veðri og með frábæru fólki. Það er einmitt þetta sem Krúser klúbburinn snýst um. Við sameinum fólk sem elskar bíla – hvort sem það eru klassískir amerískir krúserar, kvartmílukaggar og sportbílar eða nýjustu gerðirnar með alla nútímatækni.

Krúser klúbburinn er opinn öllum sem hafa áhuga á akstri, bílamenningu og því að hittast reglulega og njóta stundarinnar. Við höfum opið hús í félagsheimilinu í hverri viku, spjöllum saman yfir kaffibolla og deilum reynslu, ráðum og að sjálfsögðu myndum af tryllitækjunum okkar. Þú þarft ekki að eiga sjaldgæfan safngrip – þú þarft bara að hafa gaman af bílum og félagsskap.

Krúser klúbburinn er opinn öllum sem hafa áhuga á akstri, bílamenningu og því að hittast reglulega og njóta. Við höfum opið hús í félagsheimilinu í hverri viku, spjöllum saman yfir kaffibolla og deilum reynslu, ráðum og að sjálfsögðu myndum af tryllitækjunum okkar. Þú þarft ekki að eiga sjaldgæfan safngrip – þú þarft bara að hafa gaman af bílum og félagsskap.

Nú er komin í loftið ný og uppfærð útgáfa af vefsíðunni okkar þar sem við viljum gera auðveldara en áður að skrá sig í klúbbinn, skoða viðburði, myndasöfn og fréttir – og fylgjast með öllu því sem er framundan. Vefsíðan er enn í vinnslu svo vinsamlegast sýnið okkur biðlund á meðan.

Markmiðið er einfalt: að búa til samfélag fyrir bílaáhugafólk sem langar að keyra, hitta aðra, læra og deila því sem þau elska. Hvort sem þú ert með bíl sem þú hefur dundað við í mörg ár eða ert bara rétt að byrja í bílaáhugamálinu, þá ertu velkomin(n) í hópinn.

Fylgstu með okkur, skráðu þig og taktu þátt í næstu ferð – þetta er ferðalag sem þú vilt ekki missa af!

Categories: Almennt

0 Comments

Skildu eftir svar

Avatar placeholder

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *