Okkur er boðið í heimsókn
14 júlí, 2009 eftir bg
í BÍLALIND, Funahöfða 1, Rvík. Þar er nýjasta bílasala bæjarins með heitt kaffi á könnunni og súkkulaði og kleinur með.
Næstkomandi fimmtudag (16. júlí, ef veður leyfir) ætla bílaáhugamenn að fjölmenna á planið hjá Bílalind kl. 20:00 og hita upp fyrir rúnt með léttu spjalli og veitingum. Krúserar mæta og Mustang klúbburinn líka. Við förum svo á rúntinn um kl. 21.
Við þökkum þeim sem gengið hafa í klúbbinn síðasta mánuðinn þolinmæðina skráning hefur dregist vegna sumarleyfa en gengið verður frá skráningunni á næstu dögum.
Varberg hvað?
Hér er myndband frá rúntinum á mánudaginn: