Krúserkvöld á fimmtudaginn
11 apríl, 2012 eftir bg
Á fimmtudaginn er Krúserkvöld eins og venjulega á Höfðabakkanum, húsið opnar kl. 20.
Innheimta félagsgjalda 2012 gekk vel eins og undanfarin ár og er nú lokið. Þeir, sem ekki hafa greitt gjaldið teljast ekki lengur fullgildir félagar og missa því afsláttarkjör, sem Krúser félögum einum bjóðast.
Í lok þessarar viku ættu allir greiðandi félagar að hafa fengið bréf frá okkur með límmiða á félagsskýrteinið og afsláttarmiða frá Aðalskoðun, sendið okkur línu á kruser@kruser.is ef bréfið hefur ekki skilað sér.
Næst á dagskrá hjá okkur er aðalfundur félagsins, en hann verður auglýstur fljótlega.
—
Krúser – bara gaman