Krúser á 60 ára afmæli Þróttar 23. maí
9 maí, 2009 eftir bg
Íþróttafélagið Þróttur heldur uppá 60 ára afmæli sitt 23. maí. Krúserar ætla að taka þátt í fjörinu og mæta á bílunum ef veður leyfir.
Hátíðin hefst um kl. 13:30, en við mætum ekki síðar en kl. 13:00 stundvíslega. Bílastæði verða sérmerkt okkur við félagsheimili Þróttar að Engjavegi 7, en við verðum að mæta á réttum tíma til að komast örugglega að stæðunum.
Þægilegast er að koma af Suðurlandsbraut beygja niður Reykjaveg og þaðan inn á Engjateig.