Eru ekki allir með N1 viðskiptakort?
6 febrúar, 2012 eftir bg
Við þökkum Petru frá N1 fyrir heimsóknina síðasta fimmtudag, ef áhugi er fyrir er hún reiðubúin að heimsækja okkur aftur eftir 1-2 vikur, látið okkur vita.
Takið eftir að Krúser kortið veitir ekki lengur afslátt hjá N1, nauðsynlegt er að framvísa viðskiptakorti eða greiðslulykli til að fá Krúser afsláttinn. Sótt er um viðskiptakort fyrir alla nýja Krúser félaga og afslátturinn tengist korti eða greiðslulykli félagsmanns.
Allir Krúser félagar eiga að vera skráðir hjá N1, þeir sem ekki eiga viðskiptakort eða greiðslulykil geta snúið sér til þjónustuvers N1 (4401000 eða n1@n1.is) og beðið um kort eða lykil.
Ekki þarf að taka fram að afslátturinn er eingöngu fyrir greiðandi félagsmenn.
—
Krúser – bara gaman