Skoðunardagur Krúsera 2009
21 apríl, 2009 eftir bg
Þá nálgast skoðunardagurinn óðum.
Það verður valinn nánar skoðunardagur í fyrstu vikunni í maí þ.e. frá 4.til 8. maí.
Við ákveðum daginn endanlega eftir veðurspá en höfum úr þessum dögum að velja.
Skoðunartími verður frá kl 17. og fram undir kl 21 gott er að mæta snemma.
Skoðað á sama stað og undanfarin ár hjá Aðalskoðun Helluhrauni, Hafnarfirði.
Fylgist með þessu hér á síðunni, því að það verður aðeins dagsfyrirvari.
Við munum þó senda SMS.
p.s. Nú dugar EKKI að hafa ekki greitt félagsgjaldið fyrir 2009.
Einungis þeir sem hafa greitt geta nýtt sér þetta sértilboð til Krúser meðlima.
Greiddir meðlimir verða að hafa meðferðis gilt félagsskírteini.
Þeir sem eru búnir að borga en eiga eftir að fá límmiða merktann 2009 ættu að gera sér ferð í Krúser á fimmtudaginn og sækja miðann. Félagar úti á landi sem búnir eru að borga og hafa ekki fengið miða sendann eru beðnir að senda póst á kruser@kruser.is og við reddum málinu.
Hér eru upplýsingar um hvernig hægt er að greiða félagsgjaldið.