Krúserkvöld alla fimmtudaga
23 nóvember, 2011 eftir bg
Á fimmtudags kvöldum er Krúserkvöld á Höfðabakka 9, húsið opnar kl. 20, allir bílaáhugamenn velkomnir.
Nokkrir nýir félagsmenn eiga von á félagsskírteinum í pósti á næstu dögum.
Þeir bílaáhugamenn, sem eiga leið um Californíu í Bandaríkjunum ættu ekki að láta Mullin bílasafnið framhjá sér fara. Þetta glæsilega safn er í rúmlega 4000 fermetra húsnæði í borginni Oxnard og hefur að geyma úrval af frönskum bílum, sem margir hverjir eru í art deco stíl og voru smíðaðir á árunum 1930 -1940.
Hér er smá sýnishorn: