Lokatónleikar blúshátíðar 2009
10 apríl, 2009 eftir bg
Blúsbræðurnir og vonandi margir aðrir Krúserar skelltu sér á lokatónleika blúshátíðar á Hotel Hilton Nordica í kvöld. Húsfyllir var og fólk skemmti sér konunglega við frábæran tónlistarflutning. Þarna var einhver mikill galdur í gangi sem endaði með því að blúsbræður stormuðu á sviðið undir lokalaginu og brustu í dans. Það skal tekið fram að blúsbræðurinir voru allsgáðir, enda akandi.
Ef einhver náði þessu á myndband væri gaman að fá afrit af því.