Ljósanótt á laugardaginn
31 ágúst, 2011 eftir bg
Krúser mun taka þátt í Ljósanótt laugardaginn 3. september 2011 eins og undanfarin ár.
Planið er svona:
Brottför verður frá Höfðabakka kl 13:00 stundvíslega. Raðað upp á planinu fyrir utan 88 í Keflavík. Lagt af stað niður Hafnargötuna í Reykjanesbæ kl 15 og bílarnir sýndir til kl. 18 við Duushús.
Þátttaka okkar er háð veðri og veðurspáin er ekkert spennandi í augnablikinu, en það gæti samt orðið þurrt.
Á morgun er Krúserkvöld á Höfðabakka 9 eins og öll fimmtudagskvöld, allir bílaáhugamenn velkomnir húsið opnar kl. 20.
—
Krúser bara gaman