Krúserkvöld á Höfðabakka 9
27 júlí, 2011 eftir bg
Á morgun fimmtudag er Krúserkvöld eins og alla fimmtudaga. Húsið opnar kl. 20 allir bílaáhugamenn velkomnir.
Nokkrir nýir Krúserfélagar ættu að fá félagsskírteini sent í póstinum í vikunni, en sending þeirra hefur aðeins dregist vegna sumarfría.
Síðasta fimmtudag tókum við óvenjulegan rúnt í miðbænum og ekki var annað að heyra en flestum líkaði vel. Nýi rúnturinn gengur undir vinnuheitinu Krúser-random ef það verður rigning annað kvöld munum við bara ræða málin. Annars förum við á rúntinn og æfum nýju aðferðafræðina.
Á myndasafnsíðuna okkar á flickr eru nú komnar yfir 3000 ljósmyndir eftir 20 ljósmyndara af viðburðum hjá Krúser. Þar geta allir sem vilja vistað myndir af fólkinu, bílunum og stemmingunni.
Einn af okkar frábæru ljósmyndurum heitir Guðfinnur Eiríksson, en hann hefur einstakt auga til að fanga augnablikið og fegurðina, hér eru nokkrar myndir eftir hann:
Myndir eftir Guðfinn Eiríksson
Created with Admarket’s flickrSLiDR.
—
Krúser – bara gaman