Fyrsta Krúserkvöldið á nýjum stað
4 maí, 2011 eftir bg
Krúser félag áhugamanna um akstur og bíla er flutt að Höfðabakka 9 sjá á korti. Á morgun fimmtudag munum við hittast í fyrsta sinn á nýja staðnum. Það er búið að taka nýja húsnæðið algjörlega í gegn og sú vinna hefur lent á nokkrum félagsmönnum sem eiga miklar þakkir skildar fyrir sitt framlag.
En sjón er sögu ríkari mætið á morgun og skoðið staðinn.
Á nýja staðnum hittumst við öll fimmtudagskvöld kl. 20 alveg eins og á þeim gamla.
Það er mikið framundan hjá Krúser í sumar, en næst á dagskrá er skoðunardagurinn sem verður einhvern fallegan góðviðrisdag í maí. Sá viðburður verður kynntur nánar hér á vefnum.
Krúser – bara gaman