Vorhugur í Krúserum
8 mars, 2011 eftir bg
Þrátt fyrir snjókomu og vetrarfærð eru Krúser félagar farnir að hugsa til vorsins. Við munum þjófstarta sumrinu með þátttöku í Blúshátíð í Reykjavík, sem hefst 16. apríl. Sumardagurinn fyrsti verður fimmtudaginn 21. apríl og við munum örugglega líka láta sjá okkur þá.
Björgvin Halldórsson mun koma fram á Blúshátíð, við vitum um marga sem ætla sko ekki að missa af því.
Við fundum ekkert myndband með Björgvin að syngja blues, en hér er eitt gamalt og gott:
Núna á fimmtudaginn er að sjálfsögðu krúserkvöld eins og venjulega mæting á Bíldshöfða 18 kl. 20, allir bílaáhugamenn velkomnir.