Blúshátíð í Reykjavík 2011
5 mars, 2011 eftir bg
Krúser mun taka þátt í Blúshátíð í Reykjavík eins og undanfarin ár. Hátíðin verður haldin dagana 16. – 21. apríl og hér er forsmekkurinn af því sem koma skal:
Góðir gestir á Blúshátíð í Reykjavík: Vasti Jackson, Marquise Knox, Björgvin Halldórsson , Páll Rósinkranz & Blúsmafían, The Blue Ice Band,
Blúshátíð í Reykjavík 2011 verður haldin í áttunda sinn 16. – 21. apríl. Haldnir verða þrennir stórtónleikar á Hilton Reykjavík Nordica, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld í dymbilviku. Blúshátíð í Reykjavík hefst laugardaginn 16. april, þegar miðborgin fyllist af blús. Blúslistamaður ársins verður heiðraður, blúsvagnar Krúserklúbbsins keyra um bæinn, framinn verður blúsgjörningur og tónleikar um kvöldið.