Krúser í stærra húsnæði
26 febrúar, 2011 eftir bg
Krúser hefur gert samning við Fasteignafélagið Reitir, sem er stærsta þjónustufyrirtæki á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði á Íslandi.
Þröngt var orðið um starfsemina á gamla staðnum enda hefur Krúser stækkað og dafnað með árunum. Nýja húsnæðið er margfalt stærra en það gamla og aðkoma að því er góð. Með tilkomu nýja húsnæðisins opnast ný tækifæri, sem við munum nýta til fullnustu í starfi félagsins og viðburðum tengdum því.
Við gerum ráð fyrir að flytja í nýja húsnæðið, sem er að Höfðabakka 9 í Reykjavík í byrjun maí.
Ljósmyndir frá undirritun samningsins:
Fasteignafélagið Reitir er sem fyrr segir stærsta þjónustufyrirtæki á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði á Íslandi. kynnið ykkur starfsemi þess með því að smella á myndina: