Hagstæðari tryggingar
17 janúar, 2009 by bg
VÍS bíður félögum í Krúser verulega hagstæð kjör á tryggingum, sem við hvetjum ykkur til að nýta.
Félagar í klúbbnum fá mjög hagstæð kjör á ábyrgðartryggingu fornbíls. Greitt er hagstætt iðgjald af fornbíl 1 og 2 en hver fornbíll eftir það er frír. Framrúðutrygging er ekki innifalin í þessu verði. Skilyrði fyrir þessum kjörum er að annar bíll, ekki fornbíll, sé í tryggingu hjá VÍS á sömu kennitölu eða kennitölu maka.
Fornbíll telst vera bifreið sem náð hefur 25 ára aldri og er að mestu notuð til „spariaksturs“ en ekki til almennra hefðbundinna nota eða í atvinnurekstri.
Klúbbmeðlimum sem ekki eru hjá tryggðir hjá VÍS og hafa áhuga á að taka þessu tilboði og fá tilboð í sínar tryggingar er bent á að hafa samband við Ásgrím Helga Einarsson með tölvupósti, ahe@vis.is.
* miðað við verðlag í janúar 2008. Verð breytist samkvæmt vísitölu ábyrgðartryggingar.
Nánari upplýsingar um tryggingar hjá VÍS
Þú verður að vera skráð(ur) inn til að geta sent inn ummæli.