Nýjar skoðunarreglur
9 janúar, 2009 eftir bg
Krúserklúbburinn hefur unnið að því að fá undanþágu fyrir fornbíla um að fella niður sektarákvæði það sem var fyrirliggjandi af hendi samgönguráðuneytisins, ef bílar væru ekki færðir til skoðunar innan tveggja mánaða frá tilskyldum skoðunartíma bílsins samkvæmt síðasta staf í númeri bílsins.
Skoðunartímanum fyrir fornbíla (25 ára og eldri) var því breytt.
Niðurstaðan er þessi:
Fornbíla skal færa til skoðunar annaðhvert ár, fyrir ágúst mánuð.
Það er því óháð númeri bílsins, og enginn þarf að hafa áhyggjur af því að þurfa að fara með bílinn í skoðun um miðjan vetur, eins og menn höfðu áhyggjur af til þess að sleppa við sektir.
En auðvitað er sektarákvæðið til staðar, ef menn trassa að færa bílana til skoðunar á tilsettum tíma …..sem sagt = vera búnir að láta skoða í síðasta lagi 31. júli.
Eftir því sem næst verður komist við lestur reglugerðarinnar á að færa ökutæki sem voru nýskráð 2004 eða fyrr til skoðunar á þessu ári og síðan annðhvert ár ef um fornbifreið er að ræða.
Á skoðunarmiða fyrir aðalskoðun er áletrað árið þegar ökutæki skal næst fært til aðalskoðunar.
Á vef ráðuneytisins eru meiri upplýsingar um nýju reglurnar ásamt reglugerðinni.
P.S. þeir sem eiga erfitt með svefn ættu að prenta reglugerðina út og lesa fyrir svefninn, klikkar ekki…