Krúserkvöld á morgun
10 nóvember, 2010 eftir bg
Það er Krúserkvöld á morgun eins og öll fimmtudagskvöld húsið opnar kl 20, allir bílaáhugamenn velkomnir.
Þeir Krúser félagar sem ekki greiddu félagsgjöld 2010 teljast ekki lengur virkir félagar í Krúser og missa þar af leiðandi afsláttarkjör sem félagsmönnum einum bjóðast. Séu menn í vafa hvort þeir hafi greitt er einfaldast að senda okkur póst á kruser@kruser.is og spyrja.
Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að það er auðvelt og ódýrt að gerast félagi í Krúser og félagsmenn sem nýta sér afsláttarkjörin fá félagsgjaldið margfalt til baka í formi afsláttar.
Krúser – Bara gaman