Þá er það ákveðið – næsta laugardag, 4. okt 2008.
Bjórkvöld fyrir Krúser og gesti þeirra: í húsakynnum Krúser að Bíldshöfða 18.
Hefst kl 18.00 – upphitun
Kl. 20.00 verður síðan haldið niður í Lækjargötu á Hálendinginn. (ölstofa beint neðan við Menntaskólann)
Þar verður tilboð á Bjór fyrir okkur á kr. 500.- (þarf að sýna félagsskírteini).
Hinn ógleymanlegi og sívinsæli FoMoCo verður á bardælunni á Höfðanum,
nýkominn frá Benedorm þar sem hann kynnti sér hvernig á að græja þetta.
ath. Bíldshöfðinn lokar kl 20.00 um leið og farið verður í bæinn.