Krúser á Skothúsvegi 17. júní
14 júní, 2010 eftir bg
Krúserar verða með bílasýningu á Skothúsveginum 17. júní eins og undanfarin ár.
Þeir sem ætla að keyra mæta ekki seinna en kl. 12:20 í Sætún (gamla Heimilistækjaplanið), ökum sömu leið og í fyrra inn á Laugaveginn kl. 13.00, förum í 1 gír og röðum okkur á Skothúsveginn. Cadillac klúbburinn keyrir með okkur.
Krúserbandið, sem samanstendur af snillingunum Dóra á rafmagnsgítar, Jonna á bassa og Bigga Baldurs á trommum heldur uppi stuðinu á svæðinu frá kl. 15.
Veðurútlit er gott.
Krúser – bara gaman