Skoðunardeginum frestað um viku
2 maí, 2010 eftir bg
Það er útlit fyrir rakt veður alla vikuna, þannig að við frestum skoðunardeginum þar til í næstu viku. Við erum búnir að panta sól og blíðu í næstu viku og hamborgara á grillið þannig að skoðunardagur fyrir fornbíla Krúsera verður þá 🙂
Við minnum Krúserfélaga sem eiga eftir að borga félagsgjöld 2010 að ganga frá því sem fyrst. Eftir mánaðarmótin maí – júní detta þeir sem ekki hafa greitt út af félagaskrá og missa um leið frábær afsláttarkjör sem Krúserfélögum einum bjóðast.
Krúser – bara gaman