Lífið í Krúser
7 júní, 2019 eftir ek
Það hefur verið í nógu að snúast hjá okkur Krúserfélögunum að undanförnu, og hefur standsetning á viðbótarhúsnæði við félagsheimili okkar tekið sinn tíma. En nú er það allt afstaðið og félagarnir njóta þess að geta nú valsað um salinn sem er rúmgóður og velheppnuð aðgerð.
Það hefur verið vandamál með þessa heimasíðu í nokkurn tíma ásamt því að ritarinn hefur verið fjarverandi, en nú er þetta að komast í gang aftur.
Framundan er skemmtilegi tíminn okkar bíladellufólksins…þ.e.sumarið…sem hefur aldeilis verið á okkar bandi og höfum við notið þess vel og mætingar og rúntarnir verið vel sóttir.
Næst á dagskránni er síðan 17. Júní… en nánari dagskrá varðandi þann dag síðar.
Krúser…BARA..gaman….ALLTAF 😁☺😁😊😄😄