:-)..Dagurinn smá lengist….styttist í vorið :-) :-)..
17 janúar, 2018 eftir ek
Nú eru bara tveir mánuðir í að fyrsti rúntur ársins verði tekinn….því að seinnipart í mars er „blúsrúnturinn“ sem við köllum svo, og tengist Blúshátíð í Reykjavík sem er haldin á þessum tíma árlega.
Þetta verður tíunda árið sem að Krúserklúbbs-félagarnir taka þátt í setningu hátíðarinnar.
Til þess að koma okkur í smá blúsfíling, ætla félagarnir og gítarsnillingarnir þeir Halldór Bragason og Tryggvi Hübner að slá á létta gítarstrengi í félagsheimili Krúser fimmtudagskvöldið 18. jan 2018.
Þeir koma til með að hefja leikinn ….ca. kl. 20,30.
Þessu ætti enginn að missa af.
Allir velkomnir.:-)
Krúser…ALLTAF…gaman….ALLTAF 🙂 🙂