Félagsgjöldin
14 apríl, 2010 eftir bg
Við minnum á félagsgjöldin fyrir 2010 greiðsluseðlar voru sendir um miðjan mars bæði á pappír og í netbanka. Uppúr miðjum apríl munum við senda þeim sem greitt hafa félagsgjöld límmiða til að líma á kortið og afsláttarmiða frá Aðalskoðun. Einnig munu nokkrir nýir félagsmenn fá skírteinin sín send.
Þeir sem eiga eftir að borga og ætla að nýta sér skoðunardaginn verða því að borga í síðasta lagi 15. apríl, svo við náum að senda bréfin.
Látið okkur vinsamlega vita ef einhver hefur ekki fengið greiðsluseðil með því að senda póst á kruser@kruser.is
Meirihluti Krúsera er búinn að ganga frá sínum málum, við þökkum þeim og hvetjum um leið hina til að drífa í þessu sem fyrst.
Krúserar eru alltaf að spara, félagar njóta sérstaklega góðra afsláttarkjara hjá samstarfsaðilum og geta því náð félagsgjaldinu margfalt til baka með því að nýta sér þau. Kynnið ykkur kjörin og nýtið þau.
Svo er Krúserkvöld á morgun mæting kl. 20 Bíldshöfðanum.