Samið við Aðalskoðun
9 apríl, 2010 eftir bg
Við höfum samið við Aðalskoðun um áframhaldandi samstarf í skoðunarmálum. Aðalskoðun hefur séð um að skoða bílaflota Krúsera frá stofnun klúbbsins og við treystum engum betur til þess.
-
Á skoðunardeginum eru eingöngu skoðaðir fornbílar (25 ára og eldri) og fyrir þá greiðum við 1900 Kr
-
Meðlimir Krúser fá afsláttarmiða fyrir skoðun á einum heimilisbíl með 50 % afslætti
-
Meðlimir Krúserklúbbins eru með fastan 20 % afslátt af skoðunum hjá Aðalskoðun gegn framvísun félagsskírteinis
Afsláttarmiðinn sem veitir 50% afslátt og 20% afslátturinn gilda í heilt ár, þannig að menn mæta bara með bílana sína á réttum tíma í skoðun.
Starfsfólk á starfsstöðvum Aðalskoðunar úti á landi mun verða upplýst um þessi afsláttarmál þannig að meðlimir klúbbsins úti á landi eiga að geta nýtt sér þessa afslætti.
Skoðunardagur Krúser 2010 verður í vikunni 3-7 maí eftir kl. 17. Eins og venjulega veljum við þurran dag og sendum SMS á alla Krúsera þegar hann hefur verið valinn.
Í öllum tilfellum þarf að framvísa gildu félagsskírteini til að fá afsláttinn.
Við minnum á félagsgjöldin fyrir 2010 greiðsluseðlar voru sendir um miðjan mars bæði á pappír og í netbanka. Uppúr miðjum apríl munum við senda þeim sem greitt hafa félagsgjöld límmiða til að líma á kortið og afsláttarmiðann frá Aðalskoðun. Einnig munu nokkrir nýir félagsmenn fá skírteinin sín send.
Þeir sem eiga eftir að borga og ætla að nýta sér skoðunardaginn verða því að borga í síðasta lagi 15. apríl, svo við náum að senda bréfin.
Látið okkur vinsamlega vita ef einhver hefur ekki fengið greiðsluseðil með því að senda póst á kruser@kruser.is
Hér eru nokkrar myndir frá skoðunardeginum í fyrra:
Krúser – bara gaman