Fimmtudagur 23. júní…ROKK og RÓL hjá Krúser.. :-)
21 júní, 2016 eftir ek
„STRÁKARNIR HANS SÆVARS“ er ein af mörgum hljómsveitum sem hafa leikið stórt númer á Blúshátíð Reykjavíkur.
Þessi hljómsveit mun troða upp í félagsheimili Krúser fimmtudagskvöldið 23. júní nk. og spila á milli kl. 19.00 og 21.00.
Sem sagt, byrjað snemma og hætt snemma til þess að Krúserhópurinn geti haldið sínum „rúntplönum“ ef veðurspá er góð…hún er alltaf góð 🙂
Þessu ætti enginn að missa af, og að mæta snemma er alveg skilyrði…..Taka kvöldið í þetta og njóta sumarsins þegar sólargangur er sem lengstur…….það verður ekki sumarlegra.
Uppskrift að kvöldinu gæti verið svona: 🙂 Hætta snemma í vinnunni… sækja drossíuna í geymsluna… koma við á góðum hamborgarastað… og vera mættur hjá Krúser kl. 19 á tónleikana… og skella sér svo á rúntinn með öllum hinum félögunum og njóta þess að vera til 🙂 🙂 🙂
Það er um að gera fyrir félaga að taka með sér gesti svo að fleiri getið notið kvöldsins með okkur.
Krúser…ALLTAF gaman…ALLTAF 🙂