Allt komið í „eftir-jóla-gírinn“ …. :-) :-) :-) :-)
14 janúar, 2016 eftir ek
Jæja, þá er daginn farið að lengja amk í aðra áttina…. og þá segjum við:
ÞAÐ STYTTIST Í VORIÐ ….og ekki seinna vænna en að fara að pumpa í dekk og mæla olíuna 🙂 sem sagt gera klárt fyrir vor-rúntana. Það eru bara rúmir tveir mánuðir í fyrsta rúnt ársins : „Blús-rúntinn“ sem verður seinnipartinn i mars.
Frábær mæting síðasta fimmtudagskvöld, og verður örugglega ekki síðri í kvöld. Þá hamrar Stefán vöfflujárnið meðan það er heitt og framleiðir aldeilis frábærar vöfflur.
Svo er það getraunin…. Hvaða undirvagn er á gólfinu í félagsheimilinu….verðlaun í boði fyrir rétt svar. 🙂 🙂 🙂
Krúser..BARA gaman….ALLTAF.