Blús og Krús rúnturinn á morgun
26 mars, 2010 eftir bg
Krúserar sem eru skráðir í rúntinn mæta í Krúserhöllina eigi síðar en á sekúndunni kl. 12:00 í Bluesbrothers gallanum sem samanstendur af svörtum jakkafötum hvítri skyrtu og svörtu mjóu bindi. Krúser á hatta fyrir bílstjórana og eitthvað af gleraugum það gerir ekkert til þó fötin séu of stór eða lítil.
Rúnturinn verður útskýrður nánar þar, en í grófum dráttum:
Verður bílunum skipt í þrjá hópa (alls um 30 bílar). Hóparnir þrír verða við gatnamót Lækjargötu og Bankastrætis kl. 13:00 einn hópur verður í Bankastræti, og sitthvor hópurinn á leið suður og norður Lækjargötu keyrum síðan löturhægt að ráðhúsinu.
Þess má geta að kl. 13 verður á þessum stað framinn Blúsgjörningurinn „The flying Cadillac over the house of blues“