Frábærar mætingar á Krúser-kvöldum ….. :-) :-) :-)
4 október, 2015 eftir ek
Krúser-kvöldin hafa verið frábærlega vel sótt í sumar og það sem er af hausti. Rúnt-kvöldin með yfir 100 bílum í miðbæ Reykjavíkur er vel heppnað framtak félaganna við að gleðja augu gesta borgarinnar (þrátt fyrir lokanir borgaryfirvalda gegn bílaumferð) ásamt því að Krúser-félagarnir hafa sjálfir alltaf jafn gaman af þessu. 🙂
Gestafjöldinn sem kemur í heimsókn á fimmtudagskvöldum í félagsheimili Krúser er með eindæmum.. :-)..oftast fullt hús, enda fallega skreytt félagsheimili og félagsandinn góður. 🙂
Svo má nefna að það er margt í boði á fimmtudagskvöldunum,
t.d. frítt kaffi, Pool-borð (endalaust vinsælt), spil og töfl, glymskrattinn (tónlistin ómissandi), bílablöð og bækur í hundraða tali svo að eitthvað sé nefnt….að ógleymdum félögum sem vita allt og ekkert um bíla…. þetta lofar góðu.:-) 🙂 🙂
Krúser-félagar, endilega takið með ykkur gesti…helst þá sem ekki hafa komið áður og bjóðum þeim að kíkja í kaffi.
Krúser…BARA gaman… ALLTAF 🙂 🙂