Félagsgjöld 2010
10 mars, 2010 eftir bg
Þá er komið að innheimtu félagsgjalda 2010 gjaldið er 2500 Kr. og greiðsluseðlar fyrir þeirri upphæð eru komnir í heimabanka og á leiðinni í pósti. Gjalddagi er 1. apríl. Það er mikilvægt að þeir sem ætla að mæta á skoðunardaginn í byrjun maí greiði fyrir 15. apríl svo tími gefist til að senda út kort og límmiða.
Nú er allt að gerast hjá Krúser. Laugardaginn 27. mars munum við taka þátt í að ræsa Blúshátíð í Reykjavík 2010 með stæl. Þeir sem misstu af þessum viðburði í fyrra ættu ekki að láta sig vanta í ár. Nú þurfa menn að kíkja í fataskápinn, finna fermingarfötin og lakkrísbindið.
Dagskrána er að finna á blues.is
Þeir sem ætla að taka þátt í rúntinum skrái sig hér
Til upprifjunar eru hér myndir frá því í fyrra og hvernig á að búa til Blues Brothers búning. Svo minnum við á Blúsvegginn í Krúserhöllinni, honum má enginn missa af.
Á morgun fimmtudag er fundur eins og venjulega kl 20 á Bíldshöfða 18