Til hamingju með daginn
3 mars, 2010 eftir bg
Í dag 3. mars 2010 eru liðin fjögur ár síðan Krúser félag áhugamanna um akstur og bíla var stofnað. Við óskum félagsmönnum og afmælisbarninu til hamingju með afmælið.
Á morgun fimmtudag hittumst við á Bíldshöfða 18 kl. 20 eins og alla fimmtudaga og af því að það er fyrsti fimmtudagur mánaðarins verður bílabíó.
Krúser lengi lifi
Í síðustu viku kom Dóri vinur okkar í heimsókn og fræddi okkur um snillinginn James Super Chikan Johnson sem mun spila á Blúshátíðinni í lok mars. Auk þess að vera frábær tónlistarmaður smíðar hann hljóðfæri úr bensínbrúsum og hinum ýmsu bílavarahlutum. Gefið ykkur tíma til að horfa á þetta myndband: