Laugardagur 16. ágúst……….Vogarnir………….. :-)
14 ágúst, 2014 eftir ek
Fjölskylduhátíðin í Vogum á Vatnsleysuströnd verður haldin helgina 15-17 ágúst. Krúser-félagar hefa sett svip sinn á þessa hátíð undanfarin ár. Dagskrá hátíðarinnar má lesa á heimasíðu þeirra: www.vogar.is
Við munum mæta laugardaginn 16. ág.
og brottför frá Höfðabakka verður kl 12,30 stundvíslega. Við munum keyra gamla veginn meðfram Vatnsleysuströndinni til Voga. Þar verður farinn hópakstur í gegnum bæinn og bílunum stillt upp til sýningar á túninu góða eins og verið hefur. Kaffi og kökur fyrir alla 🙂
Krúser….BARA gaman 🙂 🙂 🙂