Sangerðisdagar nk. Laugardag
28 ágúst, 2008 eftir bg
Krúser mun næsta Laugardag, 30. Ágúst 2008 aka suður með sjó á Sandgerðishátíð í Sandgerði.
Krúserar munu mæta á staðinn og aka fylktu liði í gegnum Sandgerði og sýna bíla. Mótorhjólaklúbburinn Ernir mun aka í broddi fylkingar á undan okkur. Við munum hitta þá félagana í félagsheimili þeirra, Arnarhreiðrinu áður en aksturinn hefst. Þaðan verður siðan ekið til Sandgerðis.
Arnarhreiðrið er staðsett í gömlu Aðalstöðinni á Varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. (beint á móti gömlu flugstöðinni.)
Farið af stað frá Bíldshöfðanum kl 14.00 stundvíslega.
Nú er bara að leggjast á bæn varðandi veðrið.
Vonumst til að sjá sem flesta.