1. mars……. Fyrsti rúntur ársins :-) :-) :-)
28 febrúar, 2014 eftir ek
Laugardaginn 1. mars verður farinn fyrsti rúntur ársins. Reykjavíkurborg óskar eftir þátttöku Krúser í hátíðarhöldum vegna opnunar Hverfisgötu. (Sjá augl í fréttablaðinu). Munum við stilla bílum upp á Hverfisgötunni og taka tvo rúnta upp Hverfisgötuna og niður Laugaveginn. Góð upphitun fyrir sumarið. Endum svo á Hamborgarabúllunni á Bíldshöfðanum, þar sem Krúser sleit barnsskónum.
Brottför frá Höfðabakka kl 14.
Þeir sem eiga bíla í salarkynnum Krúser verða að mæta fyrir hádegi til þess að ná bílum út og gera sig klára…þeas þeir sem ætla að taka þátt.
Krúser BARA gaman 🙂 🙂 🙂 🙂
Í sól og sumarleit……eða þannig !
Og mæti nú allir sem myndavélar eiga 🙂