…………………….“..Valdir koppadagar..“………………………….
5 desember, 2013 eftir ek
Um leið og við þökkum öllum þeim fjölmörgu sem komu og skoðuðu sýninguna um Egil Vilhjálmsson, viljum við vekja athygli á næsta prógrammi hjá Krúser:
Næstu tvo fimmtudaga höfum við valið sem “ KOPPADAGA“. (Það er í kvöld 5.12. og 12. 12. ) Sem sagt Valdi koppasali hefur stillt upp 50 flottustu og fágætustu koppunum sínum til sýnis, eða eins og hann segir sjálfur: „eeeekkert helvítis plastdrasl“.
Valdi á örugglega stærsta koppasafn hérlendis og jafnvel víðar. Þetta er því aðeins brotabrotabrota brot af því, en engu að síður full ástæða til þess að gera þessu einhver skil, þó að í litlum mæli sé. Þetta er jú partur af bílasögunni og bílahobbyinu. 🙂 🙂 BARA gaman 🙂 Krúser BARA gaman 🙂 🙂 🙂 🙂 🙂 🙂
Alls ekki að missa af þessu………………………. !!!!!