Félagsgjöld 2009 síðasti séns
26 ágúst, 2009 eftir bg
Félagsmenn sem ekki hafa greitt félagsgjöld 2009 detta sjálfkrafa út af félagaskrá og missa afsláttarkjör hjá samstarfsaðilum okkar í framhaldinu.
Þeir sem ekki eru búnir að borga samkvæmt félagaskrá munu fá send SMS skilaboð á næstu dögum því við viljum gefa þeim kost á að ganga frá sínum málum nú um mánaðarmótin.
Ef menn telja sig vera búnir að borga hafið þá endilega samband í netfangið kruser@kruser.is eða kíkið við á Bíldshöfðanum næsta fimmtudag og við finnum útúr því. Allir sem eru með rauðan límmiða merktan 2009 á félagsskírteininu eru búnir að borga. Athugið að ekki þýðir að hringja eða senda sms í gsm númer Krúser þar sem það er netsímanúmer og ekki í neinum síma.
Félagsgjöld eru aðeins kr. 2000.- og er hægt að leggja beint inn á reikning úr heimabanka eða í næsta banka eða sparisjóði:
Reiknings númer: 0528-14-604342
Kennitala: 570306-0490
Ef greiðandi er annar en félagsmaður þarf að skrifa nafn eða kennitölu félagsmanns sem greitt er fyrir í reitinn skýring greiðslu.