Fimmtudagur og nóg að gerast
13 ágúst, 2009 eftir bg
Krúser grillmerki til að festa á bílana eru komin og verða til sölu í kvöld á 2000 kall, athugið að framboð er takmarkað.
Krúser lýsir eftir hirðljósmyndurum, einhverjum sem mæta oft á fimmtudögum, eiga góðar græjur og taka flottar myndir af bílunum, áhugasamir hafi samband í kruser@kruser.is
Um helgina er fullt að gerast
Fornbílamenn og konur eru sérstakir heiðursgestir á Aldamótahátidinni á Eyrarbakka um helgina. Endilega fyllið skottin af dóti og seljið a skottmarkaði en fornbílasýningin verður a planinu milli Vesturbúðar og Gónhóls.
Það verdur frí kjötsúpa og engjakaffi
Á sunnudaginn verður Muscle Car dagur hjá Kvartmíluklúbbunum
Svo verður rúntur í kvöld eins og venjulega