17. júní akstur Krúserklúbbsins……………….
13 júní, 2013 eftir ek
17. júní keyrsla Krúserklúbbsins verður á hefðbundnum nótum, þ.e. safnast verður saman á bílastæði Háskólans í Reykjavík við Nauthólsveg. Mæting þar kl 11.00 Brottför þaðan í lögreglufylgd um kl 12.00. Ekið verður út Nauthólsveg – Bústaðaveg – Snorrabraut – Laugaveg -Bankastræti og beygt til vinstri suður Lækjargötu. Bílunum verður stillt upp á Tjarnarbrúnni. Að sjálfsögðu verður Krúserbandið með í för.
Krúser – BARA gaman…………..Krúserbandið – Ennþámeiragaman 🙂 🙂 🙂