Nýir félagsmenn og fleira
24 júlí, 2009 eftir bg
Við bjóðum velkomna í klúbbinn 18 nýja félagsmenn sem gengu í Krúser rétt á meðan gjaldkeri félagsins brá sér í sumarfrí.
Skráning félagsmanna dróst aðeins á meðan, en nú er búið að ganga frá henni og Krúserkortin bíða ykkar á Bíldshöfðanum næstu fimmtudaga, kíkið endilega í heimsókn. Einnig er búið að sækja um N1 kort fyrir ykkur, sem ættu að berast heim til ykkar næstu daga.
Svo minnum við þá félagsmenn sem ekki hafa greitt félagsgjöld 2009 á að ganga frá sínum málum núna. Þeir sem ekki greiða félagsgjöld eru að sjálfsögðu ekki lengur félagar og missa því afsláttarkjör sem félagið hefur samið um.
Allir sem eru búnir að greiða ættu að vera komnir með 2009 límmiða á krúserkortið sitt.
Eitt í viðbót viðgerðaraðstaða sem N1 bauð uppá er ekki í boði lengur, þar sem of lítil eftirspurn var eftir henni.
Sendið okkur endilega línu á kruser@kruser.is ef einhverjar spurningar vakna.